Forsíða
Fréttir
Spurt og svarað
Fræðsla
Skýrslur
Spjall
Tenglar
Um ráðgjöfina
Póstur
heilthing.is
 

 
Fréttir

 
12. febrúar 2010 11:57

Framlag Íslands í Reyklaus 2009

 Rún Knútsdóttir

Rún Knútsdóttir

Reyksíminn og Lýðheilsustöð, í samstarfi við Evrópukeppnina European Network of Quitlines, hafa nú í valið vinningshafa í verðlaunasamkeppnina Reyklaus 2009 og er það Rún Knútsdóttir sem varð fyrir valinu.

 

 

 Þetta er í annað sinn sem staðið er fyrir þessari samkeppni á Íslandi. Auglýst var eftir reynslusögum frá fólki sem hafði hætt að reykja á tímabilinu 1.janúar 2008 til 30.júní 2009 - og í lok árs 2009 þurfti fólkið að hafa verið reyklaust í a.m.k. sex mánuði.

Sögur bárust frá um 70 einstaklingum og var saga Rúnar Knútsdóttur valin besta sagan. Verður sú reynslusaga framlag Íslands í Evrópukeppninni sem fram fer í Barcelona, 27. febrúar til 1. mars. Þar verður valin besta sagan frá þeim Evrópulöndum sem taka þátt. Í verðlaun er Rún boðið, ásamt fylgdarmanni, til Barcelona auk þess sem hún hlýtur 50.000 kr. Í farareyri.

Til mikils að vinna að vera reyklaus

Í keppninni taka þátt 19 Evrópulönd og þar kemur í ljós hver vinnur Evrópukeppnina (Quitter of the year). Sá sem vinnur þá keppni hlýtur ferðaávísun að upphæð 5000 evrur og sá í öðru sæti ferðaávísun að upphæð 2000 evrur. Það er því til mikils að vinna fyrir fyrrum reykingafólk, þótt stærsti vinningurinn sé auðvitað reyklaust líf og þar af leiðandi betri heilsa.

 


Til baka


yfirlit frétta